BKS Gluggar

Hágæðavörur fyrir íslenska veðráttu.

Diseño sin título (21)

BKS gluggar er fyrirtæki staðsett í Reykjavík. Markmiðið okkar er að bjóða upp á hátæknilega glugga fyrir íslenskan markað. Gluggarnir uppfylla allar kröfur um byggingarstaðla (C.E) og gott betur. Gluggarnir okkar búa yfir gríðarlegu álagsþoli gagnvart vindálagi (C5- sem er hæsta mögulega gildið). Sama gildir um slagregnsþéttileika gluggans, gluggarnir okkar þola 1350 pascal af þrýstingi. Einnig er loftþéttileiki gluggans fyrsta flokks, þ.e.a.s. hversu miklu lofti hann hleypir í gegn þegar hann er lokaður. Gluggarnir okkar eru í klassa 4 sem er hæsta mögulega gildið. Gluggarnir einangra afar vel gagnvart loftmengun ásamt hljóðmengun. Einnig uppfylla gluggarnir allar helstu fagurfræðilegu kröfur, vegna þess að allir gluggarnir okkar eru sérsmíðaðir eftir þörfum hvers og eins.

Fyrst við erum lítið fyrirtæki að taka okkar fyrstu skref getum við boðið viðskiptavinum okkar upp á persónulegri þjónustu en það sem telst hefðbundið í þessum atvinnugeira, eitthvað sem stærri fyrirtækin eiga að jafnaði erfiðara með. Við tökum okkur tíma til að fara ítarlega í öll smáatriði til að gulltryggja farsæla framkvæmd í öllum okkar verkum.

Við hjá BKS gluggum leggjum höfuðáherslu á vistvæna aðferðafræði, þar sem gluggarnir okkar eru mjög vistvænir getum við bæði dregið úr kolefnaspori ásamt því að spara viðskiptavinum okkar orkukostnað þegar litið er til framtíðar. Við sinnum viðskiptavinum um land allt.